BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – ÍBV á Kópavogsvelli laugardaginn 26. september kl. 14:00

26.09.2015

Leikurinn á laugardaginn er þriðji leikur Blika og Eyjamanna á þessu ári. Fyrsti leikur liðanna á árinu bæði vannst og tapaðist. Breiðablik vann ÍBV 2-0 í 3. umferð Lengjubikarsins í Akraneshöllinni 9. mars í vetur. Þetta var fyrsti leikur Kristins Jónssonar með Blikum eftir að koma úr láni frá Brommapojkarna í Svíðþjóð og ná sér af meiðslum. Kristinn fór á kostum í leiknum og sýndi hvers hann er megnugur. Hann skoraði mark og lagði upp annað. En svo kom í ljós að ekki var rétt staðið að félagaskiptum Kristins frá Svíðþjóð til Íslands og hann því ólöglegur leikmaður Blika í leiknum. ÍBV var dæmdur 3-0 sigur.

Leik ÍBV og Breiðabliks í Pepsideildinni á Hásteinsvelli 28. júní í sumar lauk með 2-0 sigri ÍBV. Okkar maður Jonathan Glenn skoraði fyrra mark ÍBV á 72. mínútu. Jonathan Glenn varð síðar leikmaður Blika. Lánssamningurinn kveður á um að leikmaðurinn leiki ekki gegn sínum gömlu félögum eins og lesa má um hér. En leikurinn í Eyjum var í 10. umferð og var fyrsti tapleikur Blika í Pepsideildinni á keppnistímabilinu. „Úrslit leiksins voru vonbrigði fyrir okkur“ skrifar fréttaritari blikar.is og bætir við „En sigur Eyjamanna var sanngjarn. Við tókum ekki nægjanlega vel á móti þeim og þeir áttu fleiri skallaeinvígi og seinni boltar voru yfirleitt hirtir upp af baráttuglöðum varnar- og miðjumönnum þeirra.“ Nánar umfjöllun um leikinn má lesa hér.

ÍBV og Breiðablik hafa mæst 83. sinnum í opinberri keppni. Þar til viðbótar eru mjög margir óskráðir leikir í svonefndri Bæjarkeppni, en sú keppni var leikin heima og heiman vor og haust og hófst í í kjölfar eldgossins í Eyjum enda mikill vinskapur á milli Kópavogs og Vestmannaeyja þá og nú. Fyrsti opinberi keppnisleikur liðanna var í 2. deildinni 1. júlí 1960. Eyjamenn unnu þann leik nokkuð stórt og þannig urðu úrslit oft í leikjum liðanna alveg fram undir 1980. Blikar vinna reyndar 4-0 sigur árið 1963 og 2-3 sigur 1972 en ÍBV voru oftast sterkari aðilinn. Heilt yfir frá árinu 1960 til 2015 sigra Blikar 29 sinnum, ÍBV sigrar 39 sinnum og það er jafnt 15 sinnum.

Allra fyrsti leikur liðanna var æfingaleikur við ÍBV í Vestmannaeyjum sumarið 1958 þegar Breiðabliksliðið var að stíga sín fyrstu skerf á knattspyrnuvellinum. Knattspyrnudeild Breiðabliks er stofnuð 1957. Myndin með fréttinni er einmitt tekin við það tækifæri. Það er fróðlegt að lesa þennan texta með myndinni „Búningarnir voru grænir með hvítri rönd. Rendurnar vísuðu í stöðu þeirra á vellinum, hægra og vinstra megin og mynduðu V. Sá sem vara með röndina frá vinstri öxl og niður til hægri spilaði vinstra megin á vellinum“. Og meiri fróðleikur því einn leikmaður Breiðabliks í umræddum leik er Grétar Kristjánsson - faðir Arnars Grétarssonar þjálfara Blika.

Fyrsti leikur liðanna í efstu deild var 1971 - árið sem Breiðablik lék fyrst í efstu deild. Sá leikur tapaðist stórt, eða 6-0. Liðin hafa mæst 51 sinnum í efstu deild. ÍBV hefur unnið 21 sinnum, Blikar 18 sinnum og jafnt hefur orðið 12 sinnum.

Í 9 efstu deildar viðureignum Breiðabliks og ÍBV á Kópavogsvelli frá árinu 2000 hafa Blikar unnið 5 sinnum, ÍBV 2 sinnum og tvisvar hafa liðin gert 1-1 jafntefli.

Leikur Breiðabliks – ÍBV verður á Kópavogsvelli á laugardaginn klukkan 14:00.

Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!

Til baka