Breiðablik - ÍA mætast í æfinagleik í Fífunni
09.02.2016Meistaraflokkur karla leikur annan æfingaleik á stuttum tíma á morgun miðvikudag kl.18.00 í Fífunni. Andstæðingar okkar verða að þessu sinni Skagamenn.
Við unnum Framara nokkuð örugglega á laugardaginn en bæði lið tefldu þá fram leikmönnum sem hafa spilað minna í vetur. En margir Blikar sýndu fína takta í Egilshöllinni í leiknum og setja pressu á þjálfarana varðandi liðsuppstillingu. Sjá umfjöllun hér.
En stefnt er að því að bæði lið tefli fram nokkurn veginn sínu sterkasta liði á morgun þannig að það verður gaman að sjá hverjir munu spila gegn frísku liði Skagamanna.
Sem sagt, Blikar-Skaginn miðvikudag kl.18.00 í Fífunni.
-AP