BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – Fjölnir í PEPSI mánudaginn 16. júlí kl. 19:15

15.07.2018

Næsti leikur okkar manna í Pepsi karla er Kópavogsvelli mánudaginn 16. júlí kl. 19:15.

Mótherjinn er lið Fjölnismanna sem eru nú með 12 stig í 10. sæti deildarinnar eftir 11 leiki. Gengi Fjölnis í síðustu fimm leikum er 1 sigur og 4 töp.

Lið Breiðabliks er nú með 19 stig í 3. sæti deiladrinnar eftir 11 leiki - sex stigum en lið Stjörnunnar og Vals sem eru bæði búin með 12 leiki. Gengi Bilka í síðustu fimm leikum er 2 sigrar, 1 tap og 2 jafntefli.

Leikurinn á Kópavogsvelli á mánudagskvöld er mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Fjölnismenn þurfa á stigum að halda til að lyfta sér frá botninum en Blikaliðið verður að vinna til að halda í við toppliðin.

Tölfræði

Leikur Breiðabliks og Fjölnis á Kópavogsvelli á mánudagskvöld verður 22. mótsleikur liðanna frá upphafi. Nánar.

Fyrsti mótskeikur liðanna var í Deildarbikarnum árið 2003. Nánar.

Árin 2004 og 2005 léku bæði lið í næst efstu deild og vann Breiðablik allar 4 viðureignirnar. Nánar.

Blikar unnu fyrstu efstu-deildar viðureign liðanna árið 2008. Nánar hér.

Heilt yfir hafa liðin spilað 21 mótsleik frá upphafi. Breiðablik leiðir þar með 14 sigurleiki. Jafnteflin eru 5 og Fjölnismenn hafa unnið 2 leiki. Fyrri tapleikurinn var 0-3 tapið í síðasta leik okkar í PEPSI á Kópavogsvelli í október 2016. Við töpum svo aftur í næsta mótsleik gegn þeim í Grafarvoginum í 2. umferð PEPSI í byrjun maí 2017. Nanar um leikinn 1-0

Efsta deild

Sagan fellur með Blikum því í 12 efstu deildar viðureignum liðanna leiða Blikar með 7 sigra gegn 2 sigrum Fjölnismanna.

2008 - Blikar vinna 1-2 í miklum rokleik í Grafarvoginum með hörku sigurmarki frá Blikanum Árna Kristni Gunnarssyni. Árni lék svo með Fjölni árin 2012-2014. Blikar vinna seinni leikinn á Kópavogsvelli 4-1 með mörkum frá Guðmundi Kristjánssyni, Nenad Zivanovic, Prince Rajcomar og sjálfsmarki.

2009 – 0:0 jafntefli á Kópavogsvelli en Blikar vinna seinni leikinn 0-2 með mörkum frá Kidda Steindórs og Gumma P. 

Fjölnismenn falla haustið 2009 en eru komnir aftur meðal þeirra bestu 2014. 

2014 – Jafntefli í báðum leikjum; 2-2 í Kópavoginum og  1-1 í Grafarvoginum. Mörk Blika í þessum viðureignum skoruðu: Árni Vilhjálmsson 2 mörk og Davíð Kristján Ólafssson 1 mark, en mark Davíðs var sérlega glæsilegt og fagnið hans ekki síður.

2015 - Blikar vinna báða leikina 2-0. Fyrri leikurinn var á Kópavogsvelli. Mörk Blika skoruðu Oliver Sigurjónsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Gísli Eyjólfsson kom inn á í leikum í sínum fyrsta efstu deildar leik. Gunnleifur Gunnleifsson var valinn maður leiksins. Gunnleifur varð fertugur daginn eftir leikinn og nýtti tækifærið til að skrifa undir nýjan samning við Breiðablik. Nánar um það hér. Síðari leikur liðanna árið 2015 var í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn vannst 0-2 með mörkum frá Jonathan Glenn, markið sem hann skoraði 8. markið hans í 9 leikjum með Blikum, og Andri Rafn Yeoman innsiglaði sigurinn með marki í uppbótartíma. 

2016 - í júlí vinna Blikar öruggan 3-0 sigur í fyrri leiknum sem var á heimavelli Fjölnismanna í Grafarvoginum Mörkin skoruðu Andri Rafn Yeoman, Gísli Eyjólfs og Daniel Bamberg. Gunnleifur varði vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks í stöðunni 0-2. Árni Vilhjálmsson lék sinn fyrsta leik með Blikum, eftir að hann kom á ný til félagsins í félagaskiptaglugganum 15. júlí, og gerði sér lítið fyrir og átti allar 3 stoðsendingar leiksins. Leikurinn var 250. mótsleikur Arnórs Sveins Aðalsteinssonar með Breiðabliki. Síðari leiknum árið 2016, sem var jafnframt lokaleikurinn það tímabil, tapaðist 0-3. 

2017- í byrjun maí tapa Blikar fyrri viðureign liðanna í 0-1í leik sem hefði kannski átt að enda með jafntefli. En Blikar vinna svo heimaleikinn í lok júlí 2-1með 2 mörkum frá fyrrverandi leikmanni Fjölnis - Martin Lund Pedersen.

Þjálfarinn

Ágúst Gylfason þjálfari Blika er í sérstakri stöðu gagnvart andstæðingum okkar Fjölni. Ágúst gekk til liðs við Grafarvogsliðið árið 2008, fyrst sem leikmaður og aðstoðarþjálfari og síðan sem aðalþjálfari frá 2013. Hann lék 20 leiki með Fjölnisliðinu og skoraði 1 mark áður en hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2009. Ágúst er mikils metinn í Grafarvoginum enda náði hann mjög góðum árangri með þá gulklæddu. En nú er hjartað hans orðið grænt þannig að það er ljóst hvar stuðningur Ágústar liggur í þessum leik.

Dagskrá

Það verður kaldur í tjaldi, börger á grilli og rjúkandi kjötsúpa. Sparkvellir á sínum stað fyrir krakkana.

Sjáumst öll á Kópavogvelli á mánudagskvöld og hvetjum okkar menn til sigurs.

Leikurinn hefst kl. 19:15!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka