BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik-FH á morgun laugardag kl.10.30 í Fífunni

09.01.2015

Þá er komið að fyrsta alvöru leik Blika á þessu keppnistímabili. Við mætum silfurdrengjunum úr FH í fotbolti.net mótinu í Fífunni á morgun laugardag kl.10.30.

Strákarnir koma ferskir undan jólafríinu og allir eru reiðubúnir að sýna sínar bestu hliðar. Þrátt fyrir að þetta sé alvöru mót þá er líklegt að

Arna og Kristófer þjálfarar muni nota næstu leiki til að prófa ýmsar uppstillingar og einnig að sjá hvernig einstakir leikmenn eru að standa sig.

En það verður gaman að sjá  hvernig hið sterka lið FH kemur undan fríinu. Nú hafa þeir misst Finn Orra og við lögðum þá örugglega í æfingaleik fyrir jól.

Það má því búast við hörkuleik í Fífunni á morgun laugardag kl.10.30.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar.

Til baka