Bosnískur U-21 árs landsliðmaður í prufu hjá Blikum
15.02.2015Bosníski U-21árs landsliðsmaðurinn Ismar Tandir er til prufu hjá Blikum og dvelur hjá okkur í nokkra daga.
Ismar sem er fæddur árið 1995 er 196 cm hár framherji. Ismar, gjarnan kallaður "Izzy", er fæddur í Þýskalandi en ólst upp í Bandaríkjunum. Hann hefur meðal annars verið á mála hjá yngri liðum Red Bull og varaliði Sochoux í Frakklandi.
Ismar hefur spilað með öllum yngri landsliðum Bosníu enda eru foreldrar hans þaðan. Hann er stór og sterkur og verður gaman að sjá hvernig hann á eftir að standa sig með Blikaliðinu.