BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Blikar mæta FH í bronsleik

16.12.2015

Blikar mæta FH í leik um 3. sætið í Bose bikarnum, í knattspyrnu karla í Fífunni á föstudaginn kl.17.00. Leikurinn er síðasti leikur strákanna fyrir jól og verður áhugavert að sjá hvernig þjálfararnir leggja upp taktíkina í leiknum. Í undanförnum leikjum hafa allir leikmenn fengið að spreyta sig og ekki er ólíklegt að margir fái einnig að spreyta sig í þessum leik. 

Flestir leikmenn eru heilir þannig að Arnar og Kristó ættu að geta still upp nokkuð sterku liði gegn Íslandsmeisturunum. Við hvetjum fólk til að taka sér smá pásu frá jólastressinu og mæta í Fífuna til að sjá fjörugan fótboltaleik.

-AP

Til baka