Blikar - ÍA á morgun kl.10.30 í Fífunni!
16.01.2015Á morgun spila strákarnir okkar gegn ÍA í fotbolta.net mótinu í Fífunni kl.10.30.
Við unnum góðan sigur á FH í síðustu umferð 2:1 þar sem fyrirliðinn Arnór Aðalsteinsson skoraði bæði mörkin.
ÍA er eina liðið sem hefur sigrað okkur á þessu undirbúningstímabili en sá sigur kom í æfingaleik í Akraneshöllinni.
Það verður því spennandi að sjá hvernig okkur gengur gegn nýliðunum í Pepsí-deildinni.
Allir Blikar að mæta.