BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Blikar-BÍ/Bolungarvík á morgun fimmtudag kl.11.00 í Fífunni

01.04.2015

Strákarnir okkar í meistaraflokknum spila sinn síðasta leik í A-riðli Lengjubikarsins á morgun fimmtudag kl.11.00 í fyrramálið í Fífunni.

Þessi óvenjulegi tími er valinn því drengirnir eru að fara í keppnisferð til Spánar á sunnudaginn og þurfa að klára leikina fyrir þá ferð.

Við verðum að vinna þennan leik til að tryggja okkur öruggt sæti í 8-liða úrslitum keppninnar og við trúum ekki öðru en strákarnir leggi sig fram.

Við hvetjum alla til að mæta. Einnig minnum við á glæsilegt happdrætti meistaraflokks en þar er hvorki meira né minna en VW Up bifreið í verðlaun.

Miðar verðar seldir á leiknum á morgun.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka