Ágætu Blikar, nú er smá pása í Pepsí-deild karla vegna landsleikjahrinu, bæði hjá A-landsliðinu og U-21 árs liðinu. Að vanda eigum við Blikar marga fulltrúa í þessum liðum. Í A-landsliðinu er Arnór Aðalsteinsson og svo nýliðinn Ingvar Kale. Við óskum þessum strákum til hamingju. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá Ingvar þarna inni en hann hefur átt frábært tímabil með Blikaliðinu. Svo eru að sjálfsögðu í liðinu ,,gömlu" Blikarnir Jóhann Berg og Gylfi Sigurðsson.
Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Elfar Freyr Helgason hefur verið valinn í U-21 árs lið Íslands sem mætir Tékkum á þriðjudaginn í Tékklandi. Aðrir Blikar í U-21 árs liðinu eru Alfreð Finnbogason, Kristinn Jónsson, Kristinn Steindórsson og Guðmundur Kristjánsson. Þar með eigum við fimm leikmenn í þessu U-21 árs landsliði og er sjálfsagt langt síðan eitt félagslið á svona marga leikmenn í einu landsliðið! Til hamingju með þetta Blikar!
Næsti leikur Blikaliðsins er gegn Fylki annan sunnudag kl.18.00 á Kópavogsvelli. Blikaklúbburinn og StuðBlikar eru að skipuleggja mikla stuðningsuppákomu og verður það auglýst þegar nær dregur. Heimsfrægir (amk á Íslandi) listamenn munu koma þar fram.
Meistaraflokki kvenna sem nú undirbýr sig af kappi fyrir Evrópuleikina tvo gegn franska liðinu Juvisse Essonne. Fyrri leikurinn í Evrópukeppninni fer fram á Kópavogsvelli fimmtudaginn 23. september og seinni leikurinn í Frakklandi 14. október. Næsti leikur liðsins er reyndar á Íslandsmótinu og er gegn Aftureldingu í dag í Mosfellsbænum kl.18.00.
Ekki má heldur gleyma að yngri flokkar félagsins eru nú á fullu og hafa staðis sig frábærlega.
2. flokkar karla og kvenna eru í toppbaráttu
2. flokkur karla spilar í kvöld kl.18.00 gegn Stjörnunni í Kópavogi. Sjá stöðuna hjá þeim. Strákarnir eru nú í 2. sæti eftir frábært gengi að undanförnu. http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=20903
2. flokkur kvenna á í baráttu við Val um Íslandsmeistaratitilinn. Sjá stöðuna hér:
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21144
3. flokkur karla spilar til úrslita við Hauka í bikarkeppni KSÍ á laugardaginn kl.12.00 á Ásvöllum. Öllum liðum 3. flokks karla hefur gengið mjög vel og er liðið öruggt í úrslitakeppnina. A liðið spilar í undanúrslitum fimmtudaginn 9. september og svo eru úrslitin sunnudaginn 12. september.
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21164
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21171
3. flokkki kvenna hefur gengið þokkalega en tókst ekki að komast í úrslit A liða.
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21163
4. flokkur kvenna B-lið eru þegar orðnir Íslandsmeistarar. Til hamingju með titilinn stelpur.
4. flokkur karla og kvenna hafa haft mikla yfirburði og eru komin í úrslit. Stelpurnar spila á föstudaginn gegn ÍA á Smárahvammsvelli kl.16.30. Strákarnir hafa haft fádæma yfirburði í A liðum og unnu A riðilinn með yfirburðum; liðið vann alla sína leiki með markatöluna 70:7! Úrslitin fara fram í Kópavoginum um næstu helgi og er fyrsti leikur á föstudag kl.16.30 gegn Gróttu.
5. flokkar karla og kvenna spila til úrslita á Íslandsmótinu um helgina.
A 2 lið 5 .flokks karla hefur komið skemmtilega á óvart og er komið í undanúrslit. Þeir mæta Stjörnumönnum í Kaplakrika á laugardaginn kl.11.00 og ef þeir sigra í þeim leik mæta þeir sigurvegara í leik FH og Fylkis kl.16.00 í leik um Íslandsmeistaratitilinn.
5. flokkur kvenna hefur haft mikla yfirburði í sumar og er með öll liðin í úrslitum. A og B liðin spila til úrslita um Íslandsmeistaratitil og er áætlað að þeir leikir fari fram á laugardaginn. Nákvæm tíma- og staðsetning er ekki komin.
Svo má ekki gleyma old-boys liðunum. Að vanda er A liðið í 40 ára í efsta sæti og B-liðið hefur ekki tapað leik í síðari umferð. 30 ára liðið er einnig í toppbaráttu.
Sjá;
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21203
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21205
http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21204
Hægt er að fylgjast með hvenær þessi leikir eru á heimasíðu Breiðabliks http://www.breidablik.is
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!
BLIKAKLÚBBURINN