Blikar á flugi á ný

30.08.2010

 

Það er óhætt að segja að Blikar hafi svarað gagnrýnisröddum með eina hættinum sem hægt er að svara slíkum röddum, með frábærum sigri á erfiðum útivelli. Fyrir leik bauð Blikaklúbburinn meðlimum og velunnurum upp á opnunarveislu á nýrri og glæsilegri heimasíðu sem Gylfi Steinn Gunnarsson á mikið hrós skilið fyrir. Klárlega besta heimasíða íslensks íþróttaliðs og þótt víðar væri leitað (með Bjarna Fel rödd). Helgi Seljan, Bliki og fréttamaður heiðraði gesti með nærveru sinni og opnaði síðuna formlega og sagði sögur af ferli sínum hjá Breiðablik. Þá tók gamli Blikinn Kormákur Bragason nokkur lög við fögnuð viðstaddra. Eftir heimasíðuopnunina var ekkert annað að gera en að bruna suður með sjó.

 

Það var ljóst fyrir leikinn að Grindvíkingar yrðu erfiðir viðureignar enda höfðu þeir hirt 6 stig af 6 mögulegum gegn FH og ÍBV í 2 síðustu leikjum. Blikar höfðu ekki unnið leik í deildinni í svolítinn tíma og voru orðnir ansi hungraðir í eitt stykki sigurleik.

 

Elfar Freyr Helgason tók út leikbann í leiknum og tók Olgeir Sigurgeirsson stöðu hans í byrjunarliði og Finnur Orri datt í hafsentinn. Annars var byrjunarlið Blika nokkuð hefðbundið:

 

Kale

Arnór

Finnur (Áni Kristinn)

Kári

Kristinn Jóns

Jökull

Gummi

Olgeir (Andri Rafn)

Haukur (Gummi Pé)

Kristinn Steindórs

Alfreð

 

Leikurinn byrjaði nokkuð rólega og voru Grindvíkingar  beittir til að byrja með en það fjaraði út eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn. Kale sem hafði verið kallaður inn í A- landsliðið fyrr um daginn var að vanda jafnbesti maður liðsins og varði oft mjög vel. Blikar fengu nokkur álitleg færi og meðal annars átti Olgeir skot af stuttu færi sem Óskar Pétursson í marki heimamanna varði með vinstri fæti. Kári Ársælsson stjórnaði vörninni eins og Nelson flotaforingi og Finnur Orri er líklega fjölhæfasti leikmaður deildarinnar og mætti halda að hann spilaði í vörninni í hverri viku.

 

Grindvíkingar voru gripnir í landhelgi um það bil 64 sinnum og hefði getað verið mun oftar ef línumaðurinn hefði fylgst ögn betur með. Greinilegt að þeir söknuðu Ondo sem var í leikbanni.

 

Kristinn Jónsson og Arnór Sveinn höfðu sig hæga í fyrri hálfleik en guð minn góður, þeir voru eins og rennilás upp og niður allan seinni hálfleikinn og unnu boltann hvað eftir annað í vörninni líka.

 

Fyrsta mark leiksins leit dagsins rétt undir lok fyrri hálfleiksins. Alfreð fékk háan bolta sem hann kom á Olgeir sem flikkaði honum á Kristinn Steindórs sem hamraði hann í netið af stuttu færi. 0-1 fyrir Breiðablik.

 

Blikar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og heimamenn voru heillum horfnir.

 

Á 50 mínútu átti Guðmundur Kristjánsson þrumuskot sem söng í netinu. Staðan orðin vænleg 0-2 og Blikar með tögl og haldir á leiknum.

 

Miðjumennirnir okkar stóðu sig alveg frábærlega vel. Olgeir spilaði eins og sá sem valdið hefur og man undirritaður hreinlega ekki eftir leik sem hefur tapast þegar Olli er í byrjunarliði. Jökull spilaði líkt og engill á miðjunni og stöðvaði ófáar sóknir af mikilli fagmennsku. (a la Arnar Grétars)
Guðmundur Kristjánsson var líklega að spila sinn besta leik í sumar. Kjötandi menn, takandi menn á og skorandi. Ekki amalegt það. Þriðja mark leiksins kom þegar korter var eftir af leiknum. Alfreð Finnbogason vann boltann á miðjum vallarhelmingi Blika. Hann tölti með boltann fram og sólaði 3 áður en hann gaf hárnákvæma sendingu á Andra Rafn Yeoman sem var kominn einn í gegn en hann renndi boltanum á Kristin Steindórs sem skoraði í autt markið. Vel gert hjá þremenningunum. Staðan orðin 0-3.

 

Veislan var ekki alveg á enda því fallegasta mark leiksins átti eftir að líta dagins ljós. Andri Rafn dansaði framhjá varnarmönnum Grindvíkinga og hamraði boltann í slá og inn. Vel gert hjá finum fríska Andra sem ætlar að reynast Blikum drjúgur á þessu tímabili.

 

Framlínan var ógnarsterk í leiknum í gær. Kristinn Steindórs var sjálfum sér líkur, ógnandi á kantinum með fáránlegt Berbatouch. Haukur hraður og sípressandi varnarmenn og komandi þeim í bobba. Þrátt fyrir að Alfreð hafi ekki skorað var hann duglegur og fór nokkrum sinnum illa með Ólaf Örn spilandi þjálfara Grindvíkinga.

 

Undir lok leikins náðu Grindvíkingar að minnka muninn með tveimur mörkum. Örlítið andvaraleysi hjá Blikum.

 

Þess ber að geta að stórblikinn og goðsögnin Árni Kristinn Gunnarsson spilaði sinn síðasta leik í bili fyrir Breiðablik.

 

Árni Kristinn er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi. Hann var hylltur sem goðsögnin sem hann er í leikslok. Við kveðjum Árna með söknuði og minnumst þessa mikla félaga með bros á vör.

 

Næsti leikur er svo 12 september á heimavelli gegn Fylkismönnum og verður það verðugt verkefni þar sem Fylkismenn eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

 

Áfram Breiðablik

GMS


Myndir: Flosi Ásmundsson





<- Til baka