Bjarka leikur í Kórnum í kvöld klukkan 19:00
03.04.2014Fimmtudaginn 3. apríl kl.19 fer fram styrktarleikur í knattspyrnu á milli Kópavogsliðana HK og Breiðabliks. Skoða myndband hér.
Leikurinn fer fram í Kórnum og rennur allur ágóði leiksins til fjölskyldu Bjarka Más Sigvaldasonar sem hefur undanfarin ár barist af krafti við krabbamein. Bjarki er uppalinn Kópavogsbúi og lék upp alla flokka í HK við góðan orðstýr.
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að koma og styrkja þessa yndislegu fjölskyldu. Í hálfleik munu SamSam systur skemmta áhorfendum og veitingasala verður fyrir leik og á meðan leik stendur.
Heiðursgestir á leiknum verða bæjarstjóri Kópavogs, formenn HK og Breiðabliks og auðvitað aðal heiðursgestirnir Bjarki og Ástrós unnusta Bjarka.
HK og Breiðablik sýna mikla samstöðu í þessum frábæra atburði og vilja leggja sitt á vogaskálarnar til að aðstoða þessa frábæru fjölskyldu.
Frjálst framlag er á leikinn, en þeir sem komast ekki geta styrkt fjölskylduna með því að leggja inná reikning 536-14-400171 kt. 630981-0269
Sýnum samstöðu, mætum og njótum þess að gera góða hluti!