BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Arnór Bjarki gerir nýjan samning við Blika

01.10.2013

Arnór Bjarki Hafsteinsson, hinn efnilegi markvörður 2. flokks karla og varamarkvörður meistaraflokks í sumar, hefur gert nýjan  3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Arnór sem lék mjög vel með 2. flokki í sumar og átti stóran þátt í því að flokkurinn varð Bikarmeistari og var hársbreidd frá því að verða Íslandsmeistari.

Arnór sem er 19 ára gamall hefur sýnt miklar framfarir undanfarin ár og er að uppskera eftir því.

Blikaklúbburinn fagnar því að ungir og efnilegir leikmenn eins og Arnór haldi tryggð við félagið og vilji spila fyrir okkur.

Verið er að ganga frá samningum við fleiri unga leikmenn og munum við hér á blikar.is segja frá því eftir því sem menn skrifa undir.

Áfram Breiðablik !

-AP

Til baka