BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Arnar Bill ráðinn fræðslustjóri KSÍ

10.12.2013

Arnar Bill Gunnarsson hefur verið ráðinn fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands og tekur við af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni þann 1. febrúar næstkomandi.

Arnar Bill hefur starfað síðustu ár hjá Breiðabliki, fyrst sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla svo sem yfirþjálfari yngri flokka en hefur síðasta ár verið aðalþjálfari 2. og 3. flokks karla.

Hann mun starfa hjá Breiðabliki þangað til hann hefur störf hjá Knattspyrnusambandinu.

Arnar Bill hefur einnig þjálfað hjá Álftanesi og FH en hann er íþróttafræðingur B.sc. frá Háskóla Íslands og er með UEFA A þjálfaragráðu.

Breiðablik óskar Arnari til hamingju með nýja starfið og þakkar honum fyrir frábært starf hans fyrir félagið undanfarin ár.

Breiðablik mun nú hefja leit að eftirmanni Arnars.

Til baka