Árbæingar koma í heimsókn!
31.08.2013
Blikar og Fylkismenn mætast á morgun sunnudag kl.18.00 á Kópavogsvellinum.
Tölfræðin er okkur i hag því Blikaliðinu hefur gengið vel með þá appelsínugulu undir stjórn Ólafs H. Kristjánssonar. Blikar hafa sigrað í átta leikjum, þeir appelsínugulu hafa sigrað þrisvar sinnum og þrisvar hefur orðið jafntefli. En tölfræðin segir samt í raun ekkert þegar út á völlinn kemur. Fylkisdrengirnir hafa verið að spila vel að undanförnu og hafa unnið góða sigra í síðari umferðinni. Það sama má í raun segja um okkur Blika því við unnum góðan sigur gegn Stjörnunni í síðasta leik. En stigin sem við töpuðum með jafnteflunum á Vesturlandi sitja í okkur. Við verðum því að sigra til að missa ekki hin toppliðin frá okkur. Fylkir er hins vegar ekki langt frá fallsæti og mun gefa allt sitt í leikinn. Það má því búast við hörkuleik á morgun.
Stuðningsmenn Blika hafa verið duglegir að mæta á leiki að undanförnu og hefur það gefið okkur byr í seglin. Við stefnum að sjálfsögðu að mæta vel í kvöld og hvetja þá grænklæddu til sigurs!
Sigur gæti hugsanlega fleytt okkur upp í 3. sæti deildarinnar.
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!
Blikaklúbburinn