Allir vegir liggja til Grindavíkur

26.08.2010


Næsti leikur Blikaliðsins í Pepsí-deild karla er gegn Grindvíkingum suður með sjó á sunnudaginn kl.18.00. Blikaklúbburinn og Stuð-Blikar boða hér með til peppfundar á sunnudaginn kl.16.00 í Smáranum. Boðið verður upp á veitingar og nýtt útlit heimasíðunnar okkar blikar.is verður afhjúpað. Það verður góður gestur sem mun opna síðuna og einnig má búast við óvæntu skemmtiatriði. Nánar um það síðar.

Svo munum við fjölmenna á einkabílum til Grindavíkur og hvetja Blikaliðið til sigurs. Strákarnir okkar eru staðráðnir í því að sýna sitt rétta andlit þannig að það má búast við skemmtilegurm leik á sunnudaginn.

Við hvetjum alla Blika til að mæta.

 En sem sagt, takið frá sunnudaginn frá kl.16.00!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!





<- Til baka