Æ..þetta var vont!.
07.07.2014
Blikar tóku á móti KR í gærkveldi í 8 liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Veður og aðstæður voru með allra besta móti og völlurinn í fínu standi. Áhorfendur fjölmargir og mættir snemma. Hæg gola af suðaustri og hiti liðlega 12°C. Skýjað en bjart.
Fyrir leik átti maður von á að Blikar myndu mæta í þennan leik með brjóstkassann fram og hökuna upp eftir mikilvægan og langþráðan sigur á Þór í PEPSI deildinni. KR-ingar búnir að vera á skriði í PEPSI deildini að undanförnu og framundan hjá þeim leikir í Meistaradeild UEFA. Það var því jarðvegur fyrir spennandi viðureign. En annað kom þó á daginn.
Byrjunarlið Blika:
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson (m)
Gísli Páll Helgason- Finnur Orri Margeirsson - Elfar Freyr Helgason - Arnór Aðalsteinsson
Elfar Árni Aðalsteinsson - Olgeir Sigurgeirsson - Andri Yeoman – Guðjón Pétur Lýðsson
Elvar Páll Sigurðsson - Árni Vilhjálmsson
Varamenn:
Arnór Bjarki Hafsteinsson (m)
Stefán Gíslason
Tómas Óli Garðarsson
Páll Olgeir Þorsteinsson
Ellert Hreinsson
Guðmundur Friðriksson
Höskuldur Gunnlaugsson
Sjúkralisti:
Damir Muminovic
Ellert er í lagi : - )
Það er eiginlega að bera í bakkafullan lækinn að ætla að fara að hrauna yfir liðið hér eða ætla að fjalla um þennan leik. Arfaslakri frammistöðu liðsins hafa allir fjölmiðlar gert skilmerkileg skil meðan á leik stóð og eftir að honum lauk og ef ekki væri fyrir brunann í Skeifunni hefði þetta verið forsíða og aðalumræðuefnið.
Okkar menn sáu aldrei til sólar í þessum leik og mættu hreinlega ekki til leiks. Engin hreyfing, ekkert spil. Feilsendingar ótalmargar og nær því að vera regla en undantekning. Návígi sáust varla og unnust enn sjaldnar og menn voru víðsfjarri andstæðingunum og leyfðu þeim að valsa um völlin að vild. Og hafi maður einhverntíma orðið vitni að leik kattarins að músinni, þá var það nú. Glatað.
Stuðningsmenn Blika áttu bágt í gær en reyndu að bera sig vel. Sumum var það um megn.
Leikmennirnir verða hinsvegar að gera upp við sig hvort þeir ætli yfirhöfuð að spila fyrir félagið í framtíðinni. Hvort þeir séu yfirhöfuð nógu góðir skal ég ósagt látið. Efinn er vissulega til staðar. En það geta allir gert miklu betur en þetta. Svona frammistaða er ekki boðleg en uppskera gærdagsins var í fullu samræmi við framlag einstaklinganna og ,,liðsheildarinnar“. Engin.
Höskuldur kom frískur inn í seinni hálfleikinn og ennfremur var gott að fá Ellert til baka úr meiðslum. Þá er það jákvæða upp talið.
Guðmundur Benediktsson og hans fólk stendur í ströngu þessa dagana og ljóst að verkefnið er hvorki einfalt né auðvelt. Nú er hinsvegar gífurlega mikilvægt fyrir alla að fara ekki á taugum (líka fyrir stuðningsmenn) heldur þétta raðirnar og standa þétt við bak þjálfarans. Það hjálpar örugglega. Það er nefnilega oft stutt á milli í þessu og þetta getur verið fljótt að snúast okkur í vil ef allir leggjast á eitt. En það gerist ekki nema menn fari af fullum krafti í verkefnin framundan. Leikmenn fyrst og fremst.
Næsti leikur okkar manna er gegn Val í PEPSI deildinni n.k. mánudag og hann hefst kl.19:15.
Krafan er að þar mæti menn eins og grenjandi ljón til leiks.
Vér mætum þó vér séum enn afar fúlir.
Áfram Breiðablik !
OWK